Lífið í Kirkjunni

Lífið í kirkjunni

Næstu skref

Við erum hér til að hjálpa þér að verða partur af kirkjufjölskyldu sem elskar að sjá líf þitt umbreytast vegna skilyrðislausrar elsku Guðs. Sama hvar þú ert stödd/staddur í lífinu það er alltaf rými til að taka fleiri skref í átt að áætlun Guðs með líf þitt.
UPPHAFIÐ
Við erum uppveðruð yfir því að þú hefur tekið fyrsta skrefið í að tilheyra hér. Við bjóðum upp á námskeið þar sem þú getur fræðst um grundvallaratriði kristinnar trúar.
Upphafið
TENGSLAHÓPAR
Við lifum í flæði þegar við deilum vegferð með öðrum. Taktu þátt í tengslahópi til að byggja upp samskipti og vináttu sem endist.

Tengslahópar
UNDIRBÚNINGUR
Með auknum þroska í trúnni fáum við betri skilning og færni til að takast á við lífið. Markviss námskeið í kirkjunni byggja upp og efla trú okkar og við kynnumst Guði og orði hans betur.
Undirbúningur
ÞJÓNUSTA
Guð hefur gefið hverju og einu okkar einstakar talentur, hæfileika og ástríðu. Ein besta leiðin til að vaxa er að nota þessar gjafir í gegnum þjónustu. 
Þjónum saman
Þjónustur kirkjunnar

Tengslahópar


HVERS VEGNA HÖFUM VIÐ TENGSLAHÓPA
Tengslahóparnir okkar eru hannaðir fyrir samfélag, ábyrgð og að vera á vegferð saman sem fjölskylda. Þeir undirbúa, uppörva og valdefla fólkið okkar í þeirra daglega lífi með Kristi í hverri viku. Þeir eru frábært tækifæri til að vera tengdur trúuðum, læra meira um Biblíuna og vaxa í trú saman sem fjölskylda.

HVAÐ ER TENGSLAHÓPUR
Tengslahópar eru litlar grúppur sem hittast á þægilegum stað til að upplifa Guð, læra meira um Biblíuna, vaxa í trúnni og kynnast fólki. Grúppurnar miða að því að byggja upp heilbrigð og góð tengsl. 
Sjá nánar

Samkomur 


Við trúum að heilbrigðar og sterkar fjölskyldur skapi heilbrigða og sterka einstaklinga. 
Við trúum að heilbrigðir og sterkir einstaklingar séu í minni hættu á að lenda utan vega í göngu lífsins. 
Við leggjum áherslu á að byggja upp unga fólkið og viljum sjá það vaxa og blómstra í samfélaginu við Guð.


Verið velkomin

Trúboðsstarf




Eins og hjarta Jesú endurspeglar svo kröftulega ástríðu hans fyrir þeim týndu, bundnu og sjúku þá þráum við að hafa sömu ástríðu til að ná út með kærleiksboðskap fagnaðarerindisins. 
Hugsjón okkar er að birta kærleika og kraft Jesú fyrir þeim sem hafa ekki fengið að reyna hann, hvort sem það er í borginni okkar, á landsbyggðinni eða meðal annarra þjóða. 


Innri lækning


Innri lækning er frábært verkfæri til að lækna hjartasár og öðlast líf í frelsi frá ótta, kvíða, reiði, biturð og öðrum neikvæðum tilfinningum. Með leiðsögn og hjálp Heilags anda er lygi fortíðar afhjúpuð og sannleikur Guðs opinberaður til að gera fólki kleift að lifa í því fullkomna frelsi sem Biblían boðar okkur.
Panta tíma

Bæn og lofgjörð


Bæn og lofgjörð er andardráttur Guðsríkisins í lífum okkar sem færir himnaríki Guðs niður á jörðu. Bæn og lofgjörð breytir lífi fólks og andrúmsloftinu yfir borgum og þjóðum og hefur áhrif á öll svið þjóðfélagsins til góðs. Bæn og lofgjörð færir fram nærveru Guðs og kemur með umbreytingu, hið góða, fagra og fullkomna. Það er vilji Guðs að gefa okkur vonarríka framtíð, framtíð til heilla en ekki til óhamingju. Jesús sagði: Hús föður míns skal nefnast bænahús. Bæn og lofgjörð skapar dvalarstað fyrir Guð til að búa á og meira rúm fyrir Guð í lífi okkar. Hún opnar hjörtu manna til að sjá Jesú sem hinn eina sanna frelsara og að fá náð til að meðtaka hann sem slíkan.

Gerið allar þjóðir að lærisveinum


Við þráum að sjá fólk vaxa og verða allt sem Guð hefur kallað það til að vera. Við trúum því að með því að hjálpa fólki að vaxa í Guði þá höfum við umbreytandi áhrif á samfélagið okkar til góðs.
Við vitum að með fræðslu og styrkingu sjálfsmyndar okkar og auðkennis þá náum við að skína eins og okkur var ætlað.
Við erum með námskeið sem miða að því að hjálpa þér að verða allt sem Guð ætlaði þér að verða.
Við elskum að sjá þig finna draumana þína og svo láta þá rætast!
SKOÐA MEIRA
Share by: