Reykjavik Transformation

Catch The Fire Reykjavík Transformation Center

Við þráum að sjá fólk vaxa og verða allt sem Guð hefur kallað það til að vera. Við trúum því að með því að hjálpa fólki að vaxa í Guði þá höfum við umbreytandi áhrif á samfélagið okkar til góðs.

Hvernig hjálpum við þér að vaxa?

ÞJÓNUSTUSKÓLINN
Við erum með skóla sem er þrjár annir, hver um sig 3 mánuðir. Skólinn miðar að því að kenna okkur meira um hver Guð er og hver við erum í honum. Þessi skóli er kenndur einu sinni í viku og aukalega um helgar. Við höfum frábæra kennara íslenska og erlenda. Meginkennslur eru um gildin okkar þrjú.
  • Nærvera
  • Mæta Guði
  • Umbreyting

Annir Þjónustuskólans:



RÓTFÖST OG GRUNDVÖLLUÐ 1
Fyrsta önn skólans okkar miðar að því að við öðlumst trúarlegan grunn í líf okkar sem við getum staðið á í hvaða aðstæðum sem er. 

RÓTFÖST OG GRUNDVÖLLUР  2
Önnur önn byggir í okkur enn meiri trú og kennir um hvernig við lifum yfirnáttúrulegu lífi. Hún hjálpar okkur að sjá virði okkar og sjálfsmynd á þann hátt sem Guð sér hana. Við byrjum að stíga inn í köllun okkar og útvalningu.

RÓTFÖST OG GRUNDVÖLLUР 3
Síðasta önn skólans miðar að því að hjálpa okkur að stíga okkar fyrstu skref sem leiðtogar innan kirkjunnar. 

Contact Us

Share by: